Sumartónar í Elliðaárdal
8. júní – 22. júní 2011Um kirkjuna og nágrenni hennar
Fella- og Hólakirkja er staðsett í fallegu og rólegu umhverfi efst í Elliðaárdalnum. Margrómuð hljómfegurð hennar er tónlistarmönnum löngu kunn, en kirkjan hefur mikið verið notuð við upptökur. Fjölskrúðugt náttúrufar, mikið fuglalíf og fagurt landslag eru einkenni Elliðaárdalsins og umhverfisins í kring, en í nágrenninu eru einnig útivistarperlurnar Elliðavatn og Heiðmörk. Úrval gönguleiða er á þessu svæði og einnig má þar finna ýmsa aðra afþreyingu svo sem silungsveiði í Elliðavatni, Árbæjarsafn og góðar sundlaugar svo eitthvað sé nefnt. Með Sumartónum í Elliðaárdal gefst borgarbúum frábært tækifæri til að komast út í náttúruna og njóta góðrar tónlistar í leiðinni.
Hér að neðan eru ýmsar slóðir áhugaverðra staða í nágrenni Fella- og Hólakirkju:
Kirkjan er í um 20-30 mínútna göngufjarlægð frá lauginni ef farið er upp Elliðaárdalinn. Strætisvagn nr. 19 gengur að lauginni.
Kirkjan er í 5 mínútna göngufjarlægð frá lauginni.